|
|
28.02.2008 21:47:38 / gudny
Jæja, lét verða af því og fékk mér nýtt blogg. Ætla núna að reyna að vera duglegri og skemmtilegri bloggari.... Sjáumst á : www.gwen.blog.is
»
16.10.2007 22:41:12 / gudny
Bara sætast í heimi: http://www.youtube.com/watch?v=BC5NoQ7Rfcw&mode=related&search=
»
10.09.2007 15:02:03 / gudny
Ótrúlegt en satt þá er ég að blogga!! Maður er bara alveg hættur að nenna þessu.... virðist ekkert vera í tísku lengur að blogga? Annars langar mig soldið að fá mér nýtt blogg með sérstakri myndasíðu en nennan hefur ekki boðið uppá það ennþá. Þangað til ætla ég að nota myndasíðuna inná FACEBOOK-inu mínu, reyndar bara 1 albúm þar núna en fleiri á leiðinni Annars er ég nú bara komin til Odense igen og hef haft mjög skemmtilega og viðburðarríka viku. Bjóst svosem ekki við að gera mikið þessa helgina en endaði svo bara á að gera endalaust mikið. Byrjaði á einum litlum bjór á miðvikudaginn, nýnemahittingi á fimmtudaginn, kulturnat í Odense föstudagskvöld og endaði svo með heljarinnar kulturugefylleríi í Århus City á sunnudagsmorgun.... Og ég sem á að vera að læra... Varð ekkert af smukkvindeløbinu sem var ein ástæða Árhúsarferðarinnar en skemmtileg ferð engu að síður. Ef ég var ekki að spila á gítar, syngja í SingStar eða syngja í karaokí á XL þá var ég í Kubbs í góða veðrinu með myndavélina að vopni að skjóta á dönsk epli í dönsku eplatréi eða borða góðan mat eða eitthvað allt annað.... alltaf nóg að gera í Århus. ![[hildur+að+flytja.jpg]](http://bp1.blogger.com/_wlJPDXUkbhI/RuRo5INX_tI/AAAAAAAAAOE/J4gzP2pp3nw/s1600/hildur%2Ba%C3%B0%2Bflytja.jpg)
---------- Þetta lýsir vel látunum sem eru alltaf í Árósum, haha ----------- Sumarið var alltof fljótt að líða og tókst mér nú ekki að gera allt sem ég ætlaði að gera... en því er nú mest að kenna helv.. prófinu sem ég þurfti að taka. En svo er líka bara gott að vera komin aftur "heim" og komin í þessa venjulegu rútínu. Nóg að gera og líður ekki langt þangað til ég verð komin á klakann aftur í faðm fjölskyldunnar á jólunum. Ég reyni nú að vera duglegri að blogga núna, og ef það verður ekki hér stofna ég líklega nýtt og læt þá vita. Over and out...
»
26.06.2007 21:17:41 / gudny
Nú er ég stödd á Íslandinu og verð hérna alveg til 2. Sept. Var
svo heppin að það var akkúrat verið að auglýsa flug fyrir aðeins
9.900 kr. til Köben með Icelandair (aðra leið), var fljót að skella
mér á það enda var það ódýrasta sem ég var búin að finna 26 þús
fyrir báðar leiðir.
Ég er búin að vera heima í rúma viku og vil endilega
fara að heyra í sem flestum, þ.e. sem ég er ekki nú þegar búin að
heyra í.... er komin aftur með sama gamla númerið mitt.
Annars er ekki mikið að frétta, vona að ég hafi náð prófunum en
fæ víst að vita það eftir 2 daga *stress* *stress*. Er svo að vinna
á Landspítalanum við Hringbraut en verð aðeins út þessa viku og
flyt mig þá yfir í Garðabæinn í júlí og svo aftur á lansann í
ágúst. Gott að hafa svolitla fjölbreytni í þessu.
Ég seldi bílinn minn í janúar og er því búin að vera svolítið
hangandi utan á þeim sem eiga bíl en var svo heppin að í nótt fór
Kata vinkona til Kanarí og lánaði mér bílinn sinn á meðan... þannig
að nú kemst ég allt sem ég vil fara án þess að þurfa að láta
einhvern sækja mig eða skutla... LÚXUS!
Jæja, annars efast ég nú um að ég skrifi mikið hérna í sumar en
stefni á að stofna nýja bloggsíðu í lok sumars og þá einhverja sem
auðvelt er að setja inn myndir á......
Vildi bara láta vita af mér, að ég væri á Íslandi og vil
endilega heyra í sem flestum
»
12.06.2007 20:07:57 / gudny
»
08.05.2007 00:51:47 / gudny
Lovísa og Grey's

Ok, ég veit ég sagðist vera hætt að blogga en vá ég bara varð að
segja einhverjum þetta.... og þar sem ég bý ein og klukkan er
miðnótt þá ákvað ég að blogga....
Ég var s.s. að horfa á Grey's Anatomy þátt nr. 23 í nýjustu
seríunni og þá hljómar allt í einu ótrúlega kunnuglegt lag, fannst
þetta vera Lay Low eða Lovísa hin Íslenska. Eftir þáttinn googlaði
ég þetta og jú jú þetta er hún. Vá hvað mér finnst þetta
merkilegt. Lítil stelpa frá Selfossi komin í svona rosa þátt útí
USA!!!!
Hægt að hlusta á lagið á myspace-inu hennar: http://www.myspace.com/baralovisa
»
26.04.2007 19:55:49 / gudny
Jábbs, mín er bara hætt að blogga Nenni þessu bara ekki
lengur, finnst ég aldrei vera að segja neitt merkilegt og því trúi
ég því ekki að þessir 50 sem kíkja hérna inn á hverjum degi finnist
þetta virkilega eitthvað spennandi. Ef mótmælin verða nógu mörg er
þó aldrei að vita hvað gerist.... en annars segi ég bara farvel og
glædelig jul
Ég og nýji kærastinn minn, Forrest Gump, kveðjum að sinni og
bjóðum alla velkomna í heimsókn.

»
31.03.2007 16:58:30 / gudny
Ég hef verið að fylgjast með X-factor í gegnum netið að
undanförnu. Núna í gær var undanúrslitaþátturinn, þannig að
næst verður sigurvegarinn krýndur. Ég var búin að spá því þegar
þættirnir voru komnir yfir í smáralindina að þetta væru þau sem
myndu keppa til úrslita. Ekki kannski endilega af því að þau væru
best heldur af því mér fannst þau skemmtilegust. Þetta eru semsagt
Hara eða Rakel og Hildur frá Hveragerði og svo færeyski folinn
Jógvan. Ég held að sjálfsögðu með Hara stelpunum því mér finnst ég
alltaf vera úr Hveragerði þó að núna hafi ég búið lengur í
Reykjavík en í Hveragerði. En þetta er sá staður sem maður ólst upp
á og því segi ég alltaf að ég sé frá Hveragerði Í einum þættinum
sungu stelpurnar lag sem ég hafði aldrei heyrt áður og er ég
gjörsamlega búin að vera með það á heilanum síðan, ótrúlega
skemmtilegt finnst mér.... það heitir I wish I was a punk rocker og
HÉRNA getið þið hlustað á það, enjoy

Það kemur oft fyrir að þegar verið er að tala um einhverja
Íslendinga hérna í útlöndum að maður þekki eða kannast við
manneskjuna. Ég komst að því að Ísland er ekki eina landið sem er
svona lítið að nánast allir þekkjast..... Færeyjar eru ennþá
minni Ég komst að því þegar ég var að læra með einni
færeyskri stelpu um daginn og datt þá í hug að segja henni frá því
að það væri færeyskur strákur að gera það gott í X-factor á
Íslandi. Henni fannst þetta mjög spennandi og sýndi ég henni því
svolítið úr þættinum. Hún hrópaði þá upp yfir sig, NEi, er þetta
Jógvan!!! HAHA, hún þekkti þá Jógvar bara persónulega....
Annars var djammið í gær hrikalega skemmtilegt. Hef ekki skemmt
mér svona vel áður með læknanemunum hérna. Hef yfirleitt bara
djammað með Íslendingum en í gær var ég eini Íslendingurinn. Það
voru reyndar ansi margir skandalar á milli bekkjarsystkinanna sem á
eftir að vera áhugavert að fylgjast með eftir páska. Fólk sem ég
gat aldrei ímyndað mér að færi að vera saman.... en það getur
greinilega allt gerst. Ég hitti svo einn Ítala í bænum í gær og ég
held ég sé með harðsperrur í maganum, ég hló svo mikið AÐ honum....
hehe. Hann var bara óendanlega fyndinn... Hann söng og lék á alls
oddi bara til að fá okkur til að hlægja, og það er vægast sagt hægt
að segja að það hafi tekist hjá honum...
»
27.03.2007 22:38:11 / gudny
Já ég er rosalega glöð að sjá hvað margir kommentuðu á síðustu
færslu hjá mér og vil ég þakka þeim fjölmörgu kærlega
fyrir
Annars hef ég voða lítið spennandi að segja núna. Hef bara verið
voða róleg síðustu daga enda er próf hjá mér á fimmtudaginn og svo
er ég að gera verkefni í sálfræði sem á að skila á
föstudaginn. Þá kemst ég í páskafrí og byrjar það með prompi á
föstudaginn þegar við stúdíugrúppan mín ætlum að fara út að borða á
Bones, til að skoða rifjasteikurnar. Semsagt að læra anatómíuna á
skemmtilegan hátt, haha Eftir það verður svo stefnan tekin á ball
sem verður haldið í skólanum og er þema þess blátt. Ég held ég eigi
engin blá föt og vantar því einhverjar góðar hugmyndir fyrir
föstudaginn.
Næsta vika verður svo tekin í allt það sem ég er búin að ætla
mér að gera síðustu mánuði. Á föstudaginn, s.s. þarnæsta, flýg ég
svo yfir til London, í annað skiptið á þessu ári. En þar verða
mamma og pabbi í golfi og voru svo elskuleg að bjóða litlu
stelpunni sinni til sín svo hún yrði ekki ein á páskunum
Veðrið í Danmörku er búið að vera æðislega gott síðustu daga. Ég
fór í mat til Gyðu á sunnudagskvöldið, en þá um nóttina var tímanum
hérna breytt þannig að núna erum við 2 tímum á undan Íslandi.
Allavega var veðrið svo æðislegt, hlýtt og bjart alveg fram yfir 8
að við Gyða borðuð bara úti. Þetta held ég að gerist nú seint á
Íslandinu, að borða úti í mars!!!!
Ég ætla að núna að halda aðeins áfram með þetta sálfræðiverkefni
sem fjallar um par sem var að missa fóstur í annað skipti. Mjög
áhugavert finnst mér og alls ekki svo erfitt.... það er þá bara
danskan sem ég þarf að komast yfir, en það gerist hægt og
bítandi
»
21.03.2007 17:05:52 / gudny
... af anatómíu. Loksins, loksins er ég í alvörunni farin að
læra læknisfræði, eða allavega finn ég núna fyrir því. Ég er
reyndar að fara í próf í næstu viku úr Siðfræði og Sálfræði og þarf
því aðeins að leggja anatómíuna til hliðar... en það er bara ekki
næstum eins skemmtilegt

Helgin var mjög skemmtileg. Á fimmtudaginn eftir anatómíulestur
skellti ég mér til bróður míns og fjölskyldu sem búa í Álaborg, ca.
3,5 klst. ferðalag með lest. Við brölluðum ýmislegt, fórum t.d. í
dýragarðinn og er Ninja hérna að knúsa litla geit sem hún rakst þar
á. Svo gerðum við bragðarefi því það eina (matarkyns) sem ég sakna
frá Íslandi er bragðarefur með fullt af nammi úr Ísbúðinni Hagamel,
mmmm. Fæ bara vatn í munninn við að hugsa um þetta. En við allavega
reyndum og gerðum okkar besta til að uppfylla þennan söknuð
minn.... útkoman var hinsvegar meira eins og jarðaberjashake með
súkkulaðikurli
Á laugardeginum fór ég svo yfir til Árósa til Hildar og Óskars
og höfðum við það svakalega kós. Ég fékk Anatómíubók á spottprís í
gegnum einhverja heimasíðu (www.pensum.dk). Þar eru seldar notaðar
bækur en ég var svo heppin að fá glænýja.... reyndar var gaurinn
sem seldi mér hana eitthvað útlenskur, heitir Marco, og við Hildur
vorum nú að spá hvort þetta gæti verið illa fengin bók ... ekki
það að við séum eitthvað fordómafullar.... en þetta var allt mjög
undarlegt! Ég er hins vegar alsæl með nýju flottu bókina mína og
sparaði 300 dkk. á því
Á mánudagskvöldið skellti ég mér svo í bíó, í held ég annað
skiptið síðan ég flutti til Danmerkur. Við fórum að sjá myndina
Kærlighedens slör, eða á ensku The painted Veil. Fyndið hvernig
danir þýða titlana á öllum myndum, maður veit svo ekkert hvaða
myndir danirnir eru að tala um þegar þeir nota bara dönsku
nöfnin.... en myndin var góð og mæli ég eindregið með henni. Mjög
sérstök ástarsaga sem gerist árið 1925 og er
algjörlega ófyrirsjáanleg.
Að lokum langar mig að minnast elsku bestu vinkonu minnar sem
var sko algjört gull og engill í mannsmynd. Hún hét Júlíanna
Bergsteinsdóttir og hefði átt 25 ára afmæli í dag en lést því miður
í snjóflóðinu í Súðavík þann 16. janúar 1995. Innilega til hamingju
með afmælið, Júlla
»
13.03.2007 22:04:16 / gudny
Nú er ég loksins farin að læra eitthvað sem hægt er að teljast
læknisfræði. Alveg þangað til núna finnst mér það sem ég hef verið
að læra ekkert öðruvísi en líffræðin heima á Íslandi... sem er
svosem alveg ágætt enda tengjast þessi tvö vísindi mikið.
Ég, Sean og Silvia erum semsagt farin að læra Anatomiu eins og
alvöru læknanemar. Byrjuðum reyndar bara í gær því síðasta vika fór
í veikindi, fyrst hjá Sean og svo hjá mér, ótrúlegt en satt. Ég
verð nú bara næstum aldrei veik (7, 9, 13) en tókst í þetta skipti
að ná mér í þessa flensu sem allir virðast vera með...
loksins fell ég inní hópinn og er ekki öðruvísi
Á fimmtudaginn skrapp ég yfir til Köben þrátt fyrir flensuna og
fékk ég tvær súpergóðar hjúkkur til að stjana við mig. Hefði sko
ekki getað haft það betra. Sif hlóð mig upp af einhverjum hor- og
höfuðverkjalosandi töflum og Jóhanna mallaði fyrir mig Kamillute.
Mér leið bara eins og prinsessunni á bauninni.
Plan köbenferðarinnar var að fara á karaokebar og
létum við sko ekki okkar eftir liggja. Ég með hálsbólguna (eða "my
sexy voice" eins og ég vil kalla það) sungum nokkur lög í
karaoke og fólk var bara hresst og tók vel undir hjá okkur.
Veit ekki hvort það var af því við sungum svona hræðilega.... eða
af því lagið var svona skemmtilegt, hehe Mér er svosem
alveg sama, við skemmtum okkur og það er það sem
skiptir máli. Jóhanna heillaði svo karlpeninginn uppúr
skónum með sínum yndislegu persónutöfrum og verður gaman
að fylgjast með framhaldinu
Nú er ég semsagt bara á fullu að læra um beinin,
vöðvana og allt þetta sem liggur undir húðinni okkar.... veit ég
tala mjög professionally, haha Próf í siðfræði og sálfræði eftir
rúmar 2 vikur og þarf ég því að fara að læra líka fyrir það. Ef
einhver veit ekki hvað siðfræði er þá langar mig að koma með eitt
dæmi sem ég fékk á inntökuprófinu í læknisfræði heima á
Íslandi:
Rúmlega fimmtugur maður er í fangelsi dæmdur til dauða. Það á að
fara að taka hann af lífi næsta dag en þú (sem læknir) ert kallaður
til því maðurinn hefur verið með verki í brjósti sem leiða út í
annan handlegginn. Þú rannsakar manninn og kemst að því að hann
hefur fengið kransæðastíflu og þurfir að gera á honum aðgerð til
þess að bjarga lífi hans. Þar sem það á að fara að taka hann af
lífi daginn eftir og svona aðgerð er mjög dýr fyrir
heilbrigðiskerfið ertu í vafa um hvað gera skal.
Hvað gerirðu og af hverju?
»
05.03.2007 12:10:38 / gudny
  
Helgin liðin og margt búið að gerast. Hef haft alveg fullt að
gera þó svo að ég hafi fengið þennan kúrs metinn og er því frekar
lítið í skólanum. Hef m.a. verið að æfa mig í að taka myndir og
leika mér með þær í photoshop, mjög skemmtilegt.... næst á dagskrá
er bara að kaupa sér góða myndavél svo maður geti farið að ráða
stillingunum sjálfur. Svo er ég líka að reyna að læra eitthvað á
gítarinn minn, sem ég er búin að eiga í rúm 2 ár en kann samt
aðeins 1 lag ágætlega.... en tekst samt alltaf að plata fólk og
láta það halda að ég sé geggjað góð, hehe
Elsku besti bróðir minn kom í heimsókn til mín á föstudaginn.
Það er alltaf gaman þegar hann er annarsvegar... hér kemur
sagan:
Hann mætti, við borðuðum, æfðum okkur á gítarana okkar (hann
keypti sér eins og minn þannig að í sumar verður við með dúet!) og
drukkum svo bjór og hvítvín, gaman Mér datt svo í hug að sýna
kallinum gamla kollegiið mitt sem er lengst útí rassgati (enda
heitir það Rasmus Rask kollegiet). Það var grímuball í gangi og
tókst mér að hafa uppi á nokkrum íslendingum sem þar búa enn og
hittum við þau. Þegar við komum, rétt yfir 12, var hætt að hleypa
inná ballið. Til að fá aðgang fékk maður hvítt armband sem á var
stimplað RRK með mjög ljósum lit og svo var raðnúmer undir því.
Bróður mínum datt þá sú snilldrahugmynd í hug að fara heim til eins
af íslendingunum og klippa úr úr hvítu blaði svona armband og reyna
svo bara að svindla sér inn..... Það gerðum við nema að við
fengum engin blöð, Friðgeir braut saman klósettpappír og setti utan
um úlnliðinn á sér og ég snéri úrinu mínu á hliðina (sem er með
hvítri ól). Þegar við komum svo aftur á ballið sýndum við
"armböndin" okkar ótrúlega snöggt og strunsuðum svo inn.... OG
komumst inn, veivei. Þetta var einn af hápunktum kvöldsins, haha,
mér leið eins og ég væri 15 aftur og væri að reyna að svindla mér
inná sveitaball í Njálsbúð.... en þá að reyna að vera 16!
Friðgeir var svo búinn að frétta af Kim Larsen í bænum og vildi
ólmur hitta "vin" sinn. Við gerðum því nokkra leit af honum en
þegar við loksins fundum pöbbinn sem hann átti víst að vera á var
búið að loka.... Friðgeir var ekki sáttur eins og sést á
myndinni
Á laugardaginn var mér boðið í afmæli og stelpupartý
aldarinnar. Ég ákvað því að toppa kvöldið með því að bjóða nokkrum
frábærum píum í mat. Afmlælispartýið var haldið hérna á kolleginu
mínu þannig að það var fyrsti viðkomustaðurinn eftir matinn. Þetta
var heljarinnar partý og mikið gaman og mikið fjör. Reyndar voru
nokkrar uppákomur sem voru ekki eins mikið fjör en það verður sko
ekki rætt á heimsnetinu í þetta skiptið. Eftir gott stopp var
förinni heitið í stelpupartýið ógurlega.... við mættum heldur seint
og var því partýið alveg að slúttast þegar við mættum á svæðið. En
þá var bara næst í stöðunni að skella sér í bæinn og reyna að mála
hann rauðan.... Þetta var allavega megakvöld og verður að
endurtakast í bráð
Í dag var svo hugmyndin að byrja að læra anatomiu með tveimur
læsemakkerum. Annar þeirra var á næturvakt þannig að hann mætti
ekki og hinn vissi ekkert meira en ég þannig að það varð lítið úr
lærdómi í dag. Ákváðum að byrja að lesa um hrygginn og hittast svo
á morgun og ræða það. Plús það að sá sem var á næturvaktinni er
búinn að taka anatomiu áður og ætlaði því að vera kennarinn
okkar.... hann mætir á morgun þannig að vonandi fáum við meira út
úr þeim deginum.
Þetta er komin ágætisfærsla hjá mér..... en ef einhver hefur
áhuga á ljósmyndun og vill kíkja á það sem ég er að gera, sem btw.
er allt á byrjunarstigi þá er hérna flickr-ið mitt, enjoy
»
26.02.2007 17:33:18 / gudny
  
Helgin var hin hressasta. Ég fékk góða gesti í heimsókn, alla
leið frá Aarhus.... Föstudagurinn var semi rólegur þar sem spilað
var á spil og gítar, og smá bjór var borinn að vörum
Laugardagurinn byrjaði svo með þvílíkum myndarskap þar sem við
Hildur létum ekki okkar eftir liggja í bollubakstri (reyndar næstum
viku of seint en hverjum er ekki sama!). Vatnsdeigsbollurnar
heppnuðust svona líka hrikalega vel og voru margir sem fengu að
bragða á lostætinu.
Kvöldið fór svo í Árshátíð FÍLD og heppnaðist hún einstaklega
vel. Reyndar leit íbúðin mín daginn eftir soldið út eins og
árshátíðin hefði verið haldin þar... en það segja mér menn að þar
hafi aðallega ég sjálf verið að verki... tókst semsagt að hella
ýmsu yfir gólfið mitt En það er bara gaman af því.
En helstu fréttir af mér eru þær að í síðustu viku fékk ég bréf
frá skólanum mínum og mér þar með tilkynnt að ég fái metið
Erfðafræðina sem ég tók í líffræði inní læknisfræðinámið mitt. Þar
með slepp ég við eitt próf sem átti að vera 29. mars. Ég get því
farið að anda aðeins léttar núna og er búin að finna mér nýtt
hobbý. Ég er semsagt farin að fikta aðeins við photoshop og það
tekur mjög mikinn tíma. Ég er þó ekki alveg laus frá lærdómi því ég
er ennþá í sálfræði og siðfræði.... sem eru bara kjaftafög og því
eina sem hægt er að gera er að læra bækurnar utanaf.....
»
20.02.2007 17:07:31 / gudny
Ég elska karaoke, besta uppfinning allra tíma. Ég kann nú ekkert
að syngja en finnst rosa gaman að syngja bara fyrir sjálfa mig....
og þá sérstaklega þegar ég á að vera að gera eitthvað annað
Núna var ég s.s. að leita að orðinu karaoke á YouTube og þetta
er það sem ég fann: Tjekk it out
Hérna er annað ekki alveg eins fyndið..... áiiiiii
»
18.02.2007 20:27:54 / gudny
Nú er ég búin að búa í Danmörku í hálft ár og finnst ég sjálf
bara orðin þokkaleg í dönskunni. Get yfirleitt gert mig skiljanlega
og skil svona mest sem er sagt við mig eeen..... ég er búin að
komast að einu! Það er ekki sama danska og danska.
Ég fór s.s. á djammið á föstudaginn og komst þá að því að ég er
bara alls ekkert góð í dönsku. Lenti á spjalli við tvo gaura sem
voru danskir og bulluðu náttlega bara dönsku. Ég gat með engu móti
skilið hvað þeir sögðu, enda voru þeir vel hífaðir og tónlistin
mjög hávær. Í stað þess að reyna að skilja hvað þeir sögðu, þóttist
ég bara skilja þá og bullaði á móti eitthvað sem ég hélt að gæti
kannski passað inní umræðuna.... þegar þeir voru svo farnir að vera
mjög hissa á því sem ég sagði ákvað ég bara að stinga af,
haha
Föstudagsdjammið var bara hressandi og var ég alveg búin að
gleyma því hvernig central Odense lítur út, enda mjög langt síðan
ég kíkti þangað eftir 00:00.
Í gær, þegar mér tókst að skríða fram úr rúminu, var förinni svo
heitið alla leið til Horsens, en þar var haldið glæsilegt þorrablót
íslendingafélagsins þar í bæ. Ég var beðin um að koma þangað til að
þjóna og hjálpa til. Ég endaði á því að vera á barnum (að
vinna) nær allt kvöldið sem mér fannst bara rosalega gaman. Ég
vann einmitt svona sjálfboðavinnu á bar í Árhús fyrir rúmu ári og
fannst það einmitt ótrúlega gaman líka... kannski maður finni sér
bara vinnu á bar til að hafa sem aukavinnu
Annars voða lítið að frétta. Árshátíð FÍLD (félag íslenskra
læknanema í danmörku) verður haldið hér í Odense næstu helgi, og
það vill svo skemmtilega til að það verður haldið hérna á hæðinni
fyrir ofan mig í sama húsi. Gæti bara ekki verið þægilegra
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
Dagsetning
28. janúar 2012
|